Font Size

Profile

Cpanel
nota8.jpg
Austurbæjarskóli v/Vitastíg | Sími: 4117200 | Fax: 4117201  Íþróttahús: 4117196 | Draumaland: Sími: 4115570 | gsm: 6185062 / 6955062

Forsíða

Menningarmót níundu bekkja

Tvo morgna í lok janúar héldu 9. bekkirnir menningarmót í samfélagsfræðitímum. Á menningarmótum fá nemendur, foreldrar og starfsfólk tækifæri til að hittast og kynna menningu sína og áhugamál í hvetjandi umhverfi og á  lifandi hátt. Hver þátttakandi er með sitt „svæði“ og kynnir sín áhugamál og sína menningu, sem þarf ekki endilega að vera þjóðarmenning heldur einungis það sem skiptir mestu máli fyrir hvern og einn.

Nánar: Menningarmót níundu bekkja

Uppfærsla

Verið er að uppfæra heimasíðuna á netþjóni UTM og þess vegna gæti ýmsir hnappar ekki virkað um stundarsakir. Ef uppfærslan mistekst og allt fer á versta veg verður síðan "niðurfærð" aftur. Enn er verið að kanna hvers vegna ekki er hægt að senda póst á starfsmenn í gegnum síðuna og svitna margir við þá vinnu. VIð vonum það besta.

Frá Hollvinafélaginu

Umsvif Hollvinafélagsins hafa frá stofnun beinst að sögu skólans og varðveislu merkra muna í eigu hans. Herbergi í risi hefur verið tekið undir gömul kennslutæki, landakort og fleira. Hillur hafa verið keyptar og grindur sérsmíðaðar til að hengja á gömul myndaspjöld sem notuð voru við kennslu í ýmsum námsgreinum. Öllu hefur verið haganlega komið fyrir í sjálfboðavinnu stjórnarmanna.

Nánar: Frá Hollvinafélaginu

Góður gestur í heimsókn

melkorkaStöku sinnum leggja pattaralegir heimiliskettir leið sína í skólann. Þegar slíkt gerist er þessum námfúsu ferfætlingum ávallt vísað á dyr enda sum börn haldin ofnæmi fyrir öllu sem dillar loðnu skotti. Á dögunum sást stálpaður kettlingur á vappi um gangana þar sem hann velti fyrir sér hvort hann ætti að fara í tónmennt eða lestrartíma með fyrstu bekkingum.

Nánar: Góður gestur í heimsókn

einelti2

namsatlanir12

formodull

prufa5

prufa7

saft nota

Innskráning

Facebook