Forsíða
7. bekkir heim frá Reykjum
- Útgáfudagur Föstudagur, 18 Maí 2012 11:05
7. bekkir koma heim frá Reykjum í dag, föstudag. Komnar eru inn nokkrar myndir frá ferðinni inn á heimasíðu Skólabúðanna og má skoða þær hér.
Álfar og tröll
- Útgáfudagur Föstudagur, 18 Maí 2012 11:05
Á smiðjudögunum var margt hægt að dunda sér við og í einni smiðjunni voru föndruð nátttröll. Börnin fengu fræðslu um tröll og álfa og heimsóttu Borgir í Kópavogi sem er mikil álfabyggð. Að lokum var byggður álfhóll í kennslustofunni. [Sjá myndir]
Smiðjudagur hjá 1. - 3. bekk
- Útgáfudagur Fimmtudagur, 17 Maí 2012 12:50
Dagana 14.-16. maí voru smiðjudagar í 1.-3. bekk, þar blönduðust nemendur í smiðjum sem þau völdu sig í. Ýmsar smiðjur voru í boði, víkingasmiðja, skartgripa- og hljóðfæragerð, leiklist, tónlist, álfar og tröll, smíðasmiðja, sokkabrúðusmiðja og hreyfimyndagerð. Í lokin var svo boðið upp á grillaðar pylsur í portinu. [Skoða myndir]












